25 Visites |
0 Candidats |
Description du poste:
Line of ServiceAssurance
Industry/SectorNot Applicable
SpecialismAssurance
Management LevelAssociate
Job Description & SummaryViltu öðlast dýrmæta reynslu hjá alþjóðlegu þekkingarfyrirtæki og og efla hæfni þína í endurskoðun og reikningsskilum?
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingum með brennandi áhuga á endurskoðun og reikningsskilum til að ganga til liðs við skrifstofu okkar í Reykjavík. Við bjóðum upp á tækifæri til að vaxa í starfi, öðlast starfsreynslu hjá alþjóðlegu þekkingarfyrirtæki og sveigjanlegt starfshlutfall með námi. Þetta starf er tilvalið fyrir þau sem stefna að, eru skráð í eða hafa lokið mastersgráðu í endurskoðun og reikningsskilum.
Viðkomandi mun starfa í fjölbreyttum verkefnum undir leiðsögn sérfræðinga í endurskoðun og reikningsskilum og mynda náin tengsl við bæði löggilta endurskoðendur og aðra nema í endurskoðun.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þig til að vaxa og þróast sem fagmanneskja í spennandi umhverfi.
Starfs- og ábyrgðarsvið
* Þátttaka í undirbúning og framkvæmd endurskoðunar og reikningsskila fjölbreyttra fyrirtækja, stofnana, sveitarfélaga og annarra lögaðila
* Þátttaka í uppgjörum og uppsetningu ársreikninga
* Önnur tengd og tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
* Bachelor gráða í viðskiptafræði, hagfræði eða annarri tengdri námsgrein
* Ástundun meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun, eða að hafa lokið slíku námi, er kostur
* Starfsreynsla í skrifstofuumhverfi og bókhaldi er kostur
* Metnaður til að ná árangri í starfi
* Skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð
* Hæfni til að vinna í hóp
* Sjálfstæði, frumkvæði og sterk samskiptahæfni
Starfsþróun
* Allir nýir starfsmenn PwC fá úthlutaðan mentor sem veitir þeim sérstaka handleiðslu fyrstu mánuðina í starfi
* Mánaðarleg snerpusamtöl milli yfirmanns og starfsmanna
* Árleg frammistöðusamtöl og markmiðasetning
* Mikil áhersla á fræðslu og endurmenntun
Starfsumhverfið
Hjá PwC starfar fjölbreyttur hópur um 120 sérfræðinga. Vinnutíminn er sveigjanlegur og boðið er upp á hlutastarf með námi. Við leggjum áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Glæsilegt mötuneyti og búningsaðstaða er í húsinu, sem og hugleiðslu- og afþreyingarherbergi fyrir starfsfólk PwC.
Mikið er lagt upp úr heilsueflingu starfsfólks, en til staðar er heilsuráð þar sem starfsfólk tekur þátt í ýmsum átökum til þess að styðja undir heilsurækt.
Starfsmönnum gefst kostur á að nýta sér alhliða heilsuræktarstyrk árlega, sem og mánaðarlegan samgöngustyrk fyrir þau sem labba, hjóla eða nýta sér almenningssamgöngur í vinnuna.
PwC leggur áherslu á faglega uppbyggingu, þátttöku í námskeiðum og sérhæfingu starfsfólks. Sem partur af teymi sérfræðinga færðu aðgang að alþjóðlegu fagefni og sérfræðihópum sem og tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegum fræði- og umræðuhópum innan PwC samstarfsnetsins. Rík fræðsluáætlun er hjá félaginu og mikil áhersla á fræðslu og endurmenntun alls starfsfólks.
Viltu vita meira?
Nánari upplýsingar veitir Katrín Ingibergsdóttir, mannauðsstjóri, á netfangið mannaudur@pwc.com, eða Arna Tryggvadóttir, sviðsstjóri endurskoðunarsviðs, á netfangið arna.g.tryggvadottir@pwc.com.
Tekið er á móti umsóknum á vef okkar www.pwc.is/storf og haft verður samband við umsækjendur jafnóðum og umsóknir berast.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf haustið 2025.
Um PwC
PwC er framsækið og traust fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila, fyrirtækjaráðgjafar og skatta- og lögfræðiráðgjafar. PwC sem er eitt stærsta endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki í heiminum. PwC leggur áherslu á faglega uppbyggingu, þátttöku í námskeiðum og sérhæfingu starfsfólks.
Education (if blank, degree and/or field of study not specified)Degrees/Field of Study required:
Degrees/Field of Study preferred:
Certifications (if blank, certifications not specified)
Required Skills
Optional SkillsAccepting Feedback, Accepting Feedback, Accounting and Financial Reporting Standards, Accounting Policies, Active Listening, Artificial Intelligence (AI) Platform, Auditing, Auditing Methodologies, Client Management, Communication, Compliance Auditing, Complying With Regulations, Data Analysis and Interpretation, Data Ingestion, Data Modeling, Data Quality, Data Security, Data Transformation, Data Visualization, Emotional Regulation, Empathy, External Audit, Financial Accounting, Financial Audit, Financial Disclosure Report {+ 19 more}
Desired Languages (If blank, desired languages not specified)
Travel RequirementsNot Specified
Available for Work Visa Sponsorship?No
Government Clearance Required?No
Job Posting End Dateapríl 30, 2025
Origine: | Site web de l'entreprise |
Publié: | 07 Mar 2025 (vérifié le 10 Avr 2025) |
Type de poste: | Emploi |
Secteur: | Audit / Comptabilité |
Langues: | Danois, Islandais, Anglais |